Við, hópur fólks sem þekkingu hefur á sjávarútvegsmálum og skilning á að breyta þarf fiskveiðistjórnunarkerfi okkar íslendinga sendum frá okkur þessar tillögur að breyttu stjórnkerfi. Þessar tillögur okkar gera ráð fyrir mun meira frelsi til fiskveiða. Jafnframt ganga þær út á að gjald fyrir afnot af auðlindi ráðist af eftirspurn, sanngjarnara verður það varla. Þetta auðlindagjald skiptist jafnt milli ríkis og sveitarfélaganna. Þar með er viðurkenndur réttur íbúa sjávarbyggða til arðsins af fiskimiðunum.
Kerfið er einfalt og auðvelt að koma því á. Engu að síður er hægt að þróa það og bæta í framtíðinni. Tillögurnar má lesa hér.