Kosningabaráttan hefur verið mjög skemmtileg hjá okkur sjálfstæðismönnum og frábært að finna þá sveiflu sem með okkur er. Við höfum ekki látið draga okkur í skítkast og þann subbuskab sem á okkur hefur verið hermdur. Þess vegna höfum við sigrað kosningabaráttuna. Ég er ekki viss um að þeir sem sökkva sér í drullubaksturinn hafi jafn gaman af.
Við höfum reyndar gott veganesti þar sem eru störf okkar fyrir sveitarfélagið. Rangfærslur í grein á Skutli í gær um að minnihlutinn gæti að kynjahlutfalli við skipan í nefndir eru dæmi um það hvernig gefa má skakka mynd af raunveruleikanum. Fólk getur kynnt sér þessar nefndir á vef Ísafjarðarbæjar.
Rangfærslur um málefni eldri borgara eru annað dæmi um slíka raunveruleikabjögun. Þar höfum við einmitt verið að standa okkur mjög vel á flestum sviðum, þó vissulega vanti enn nýtt hjúkrunarheimili. Þeir sem kynna sér málin komast fljótt að hinu sanna.
Ég og samflokksfólk mitt erum ekki að fara að gera nein stórkostleg kraftaverk. Við höfum fyrst og fremst hugsað okkar að vanda til allra verka. Kannski endar það samt með einhverjum smáum kraftaverkum þegar upp er staðið.

